



KYRRÐ barnapeysa
Regular price 1.090 kr Save Liquid error (snippets/product-template line 119): Computation results in '-Infinity'%/
KYRRÐ barnapeysa er prjónuð frá hálsmáli með fallegu mynstri á berustykki. Auðvelt er að lengja eða stytta ermar og bol til þess að peysan passi sem best á barnið. Mynstrið á berustykkinu er jafnlangt í öllum stærðum svo það nær ekki eins langt í stærri stærðum eins og sýnt er á forsíðumynd. Peysan er prjónuð úr dásamlega Scout garninu sem bæði er létt og hlýtt og hentar sérstaklega vel undir útifatnað.
Stærðir | Yfirvídd | Garn |
1-2 ára | 61 cm | 150 gr. |
2-4 ára | 65 cm | 200 gr. |
4-6 ára | 71 cm | 250 gr. |
6-8 ára | 74 cm | 300 gr. |
8-10 ára | 80 cm | 350 gr. |
10-12 ára | 83 cm | 400 gr. |
Garn
Garnið sem notað er í sýningareintak er Scout Kelbourne Woolens - fæst í vefverslun MeMe Knitting
(Scout garnið kemur í 100 gramma dokkum)
Athugið að um áætlað magn er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf.
Það sem þarf
- 3,5 mm hringprjón (40 og 60 cm)
- 4,0 mm hringprjón (40 og 60 cm)
- 3,5 mm sokkaprjóna
- 4,0 mm sokkaprjóna
- Prjónamerki
- Nál fyrir frágang
Prjónfesta
10 cm = 22 lykkjur sléttprjón á 4,0 mm prjóna