Andadúns & Merino Bouclé

Andadúns & Merino Bouclé

Filter

      71% merinóull, 24% Polyamide og 5% andadúnn (hvítu flygsurnar)

      50 grömm / 260 metrar

      Prjónastærð: 4 mm

      Prjónfesta: 14 lykkjur = 10 cm

      Handþvottur

      Mjúkt og drjúgt andadúns- og merinó bouclégarn sem hentar í allskyns flíkur fyrir allan aldur. Frábært eitt og sér, einfalt eða tvöfalt eða sem fylgiþráður í stað mohair.

      Það sem gerir garnið mjúkt er ekki bara merinoullin heldur litlu óvenjulegu andadúns flygsurnar. Flygsurnar eiga það til að vilja flögra í burtu, þrátt fyrir að vera spunnar með garninu, því þarf að vera mjúkhentur og passa vel upp á garnið.

      Sem fylgiþráður hentar þetta garn einkar vel með Angóra & merino garninu frá okkur, en með einfaldan þráð af hvoru tveggja hentar að nota prjóna 7 mm prjóna.

      Garnið er hluti af grænni línu Kind, en við kaupum afganga af lúxusgarni frá verksmiðjum úti í heimi. Við fáum takmarkað magn í hvert sinn og ekki er víst að við fáum sama lit aftur. 

       


      0 products

      0 products

      Sorry, there are no products in this collection.