LÓA ungbarnablússa
Regular price 1.090 kr Save Liquid error (snippets/product-template line 119): Computation results in '-Infinity'%LÓA ungbarnablússa er sparileg og falleg flík á ynstu börnin. Blússan er prjónuð neðan frá með aukinni vídd neðst á bolnum og víðum kvartermum. Ýmsar tæknilegar aðferðir í uppskriftinni henta mögulega ekki byrjendum. T.d. er notast við opið uppfit (e. Provisional cast on), stuttar umferðir í hálsmáli og snúru affellingu (e. i-cord bind off). Bolur og ermar eru prjónaðar í sitthvoru lagi. Stykkin eru sameinuð og úrtökur gerðar á berustykki.
|
Stærð |
Yfirvídd blússu |
Garn* |
|
0-1 mánaða |
40 cm |
100 gr |
|
1-3 mánaða |
43 cm |
100 gr |
|
3-6 mánaða |
47 cm |
100 gr |
|
6-9 mánaða |
51 cm |
150 gr |
|
9-12 mánaða |
56 cm |
150 gr |
*Athugið að um áætlað magn er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf. Miðað er við Summer in Kashmir frá BC Garn, takið tillit til metrafjölda ef annað garn er notað.
Garn
Summer in Kashmir frá BC Garn (sýnt á mynd) (50g/165m) eða Bio Balance frá BC Garn (50g/225m) eða Sandnes Sunday (50g/235m).
Það sem þarf
- 3,0 mm hringprjónn / 40 og 60 cm
- 3,0 mm sokkaprjónar
- Prjónamerki
- Heklunál
- 1 tala
Prjónfesta
10 cm = 28 lykkjur og 38 umferðir sléttprjón