









VÍK Hneppt Barnapeysa
Regular price 1.090 kr Save Liquid error (snippets/product-template line 119): Computation results in '-Infinity'%/
VÍK hneppt barnapeysa er hluti af VÍK línunni frá MeMe Knitting. Peysan er prjónuð fram og til baka frá hálsmáli með laskaútaukningum. Ermar eru með víðu sniði og hentar peysan því mjög vel sem jakkapeysa. Einföld en falleg blanda af sléttu- og perluprjóni.
Stærð |
Ummál peysu |
Garn* |
6-12 mánaða |
57 cm |
150 grömm |
1-2 ára |
62 cm |
200 grömm |
2-4 ára |
71 cm |
250 grömm |
4-6 ára |
76 cm |
300 grömm |
6-8 ára |
79 cm |
350 grömm |
8-10 ára |
86 cm |
400 grömm |
*Athugið að um áætlað magn af garni er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf. Miðað er við Double Sunday frá Sandnes Garn.
Garn
Double Sunday frá Sandnes Garn (50 g/108 m) (sýnt í litnum Almond), Scout frá Kelbourne Woolens (100 g/250 m) eða Babyalpaka frá Kremke (50 g/100 m)
Það sem þarf
- 4,5 mm hringprjón / 40 cm
- 4,0 mm hringprjón / 40 cm
- 4,5 mm sokkaprjóna
- 4,0 mm sokkaprjóna
- Prjónamerki
Prjónfesta
10 cm = 21 lykkjur mynsturprjón