ASKUR & EMBLA ungbarnasett
ASKUR & EMBLA ungbarnasett
ASKUR & EMBLA ungbarnasett
ASKUR & EMBLA ungbarnasett
ASKUR & EMBLA ungbarnasett
ASKUR & EMBLA ungbarnasett
ASKUR & EMBLA ungbarnasett
ASKUR & EMBLA ungbarnasett

ASKUR & EMBLA ungbarnasett

Regular price 1.990 kr Save Liquid error (snippets/product-template line 119): Computation results in '-Infinity'%
/

Only -1036 items in stock!

Nafnið á settinu er vitnun í norræna goðafræði. Bræðurnir Óðinn, Vilji og Vé fundu á sjávarströndu tvo trédrumba. Óðinn gaf þeim líf og sál, Vilji gaf þeim málið og Vé gaf þeim vit og skynsemi. Gáfu þeir drumbunum nöfnin Askur og Embla og er af þeim allt mannkynið komið.

Stærðir Garn í peysu Garn í buxur
0-3 mánaða 150 gr. 100 gr.
3-6 mánaða 150 gr. 150 gr.
6-9 mánaða 150 gr. 150 gr.
9-12 mánaða 200 gr. 200 gr.
12-18 mánaða 200 gr. 200 gr.
18-24 mánaða 250 gr. 250 gr.
2-3 ára 250 gr. 250 gr.

Athugið að um áætlað magn er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf.

Garn

Sandnes Merinoull eða annað garn sem passar við prjónfestuna, t.d. Scout eða Bébé Soft Wash sem fæst í vefverslun MeMe Knitting.

Prjónfesta

10 cm = 22 lykkjur sléttprjón á 4 mm prjóna

ASKUR peysa

Peysan er prjónuð neðan frá, fram og til baka, með laskúrtöku. Ermar eru prjónaðar í hring. Hnappalisti er prjónaður jafnóðum og er peysunni hneppt vinstra megin. Mynstur er aðeins prjónað að framan.

Það sem þarf
  • 4,0 mm hringprjónn
  • 4,0 mm sokkaprjónar
  • Kaðalprjónn
  • Tölur
  • Prjónamerki
  • Nál fyrir frágang 

 

 

EMBLA buxur

Buxurnar eru prjónaðar ofan frá og í hring með mynstri á hvorri hlið. Stuttar umferðir eru prjónaðar að aftan til þess að auka pláss fyrir litla bossa.

Það sem þarf      
  • 4 mm hringprjónn
  • 4 mm sokkaprjónar
  • Kaðalprjónn
  • Prjónamerki
  • Nál fyrir frágang

 

 

 


Fleiri vörur sem þér gæti líkað...